Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6389
Í þessari ritgerð var leitast við að bera saman hvernig skólar á Íslandi annars vegar og í Danmörku hins vegar taka á móti tvítyngdum nemendum. Hvernig móttökuferlinu er háttað, hvort um sérstaka móttökubekki er að ræða eða önnur úrræði. Komið er inn á það sem tengist tvítyngdum nemendum, ólíka menningu, máltöku tvítyngdra og mikilvægi móðurmálsins. Einnig eru skoðaðar stefnur beggja landa í tengslum við nemendur með erlendan bakgrunn.
Rannsóknarsniðið er bæði eigindleg og megindleg rannsókn þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir og viðtöl í kjölfarið – en rannsóknarsniðið er þó fyrst og fremst eigindlegt. Rætt var við fjóra kennara í tveimur skólum annars vegar á Íslandi og hinsvegar í tveimur skólum í Danmörku.
Helstu niðurstöður eru þær að miðað við stutta innflytjendasögu Íslands virðist þjónusta við tvítyngd börn í grunnskólum landanna mjög áþekk.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð2010.pdf | 576.79 kB | Opinn | Tvítyngi | Skoða/Opna |