Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6425
Verkefni þetta er greinaflokkur um elsta skólahúsnæði Mosfellsbæjar, Brúarland, ásamt greinargerð. Í greinunum er fjallað um sögu Brúarlands, byggingu þess og nýtingu í gegnum tíðina og hernámið 1940. Markmiðið með verkefninu er að gefa lesendum hugmynd um það samfélag sem var á Brúarlandi og menninguna sem þar ríkti. Á Brúarlandi var skóli, heimavist, pósthús, símstöð og samkomuhús sveitarinnar, Brúarland var í raun miðpunktur Mosfellshrepps. Skólastjórahjónin, Lárus B. Halldórsson og Kristín Magnúsdóttir, eru í aðalhlutverki ásamt fjölskyldu þeirra. Reynt er að varpa ljósi á áhrif hersins sem kom sér fyrir á Brúarlandi og þá fær Winston Churchill talsvert pláss vegna heimsóknar sinnar í Mosfellssveit í ágúst 1941. Vangaveltur um framtíð hússins eru tíundaðar um leið og fjallað er um framhaldsskólann sem nú nýtir húsnæðið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
bruarland_thrainn_a_baldvinsson.pdf | 257.39 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |