Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6438
Markmið þessa verkefnis er að rannsaka í fræðilegum heimildum fjölmenningarfræðanna innan uppeldis- og menntavísinda það sem fram kemur um heimsóknir inn á heimili í samstarfi heimila og skóla. Spurt er hvaða áhrif heimsóknir inn á heimili hafi á foreldra, skóla og börn. Sérstaklega er litið til foreldrasamstarfs skóla og erlendra foreldra hvað þetta varðar. Leitað er helstu þátta sem nauðsynlegir þykja til að heimsóknir inn á heimili beri tilætlaðan árangur og þá er m.a. horft til þjálfunar og undirbúnings kennara. Dæmi eru tekin um verkefni og rannsóknir erlendis frá og hér á landi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LokaverkefniHeimsókniríforelrdasamstarfiapril2010.pdf | 512.36 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |