Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6462
Í þessari ritgerð er verkefnamiðuð tungumálakennsla (taskbased language teaching) kynnt ítarlega með aðstoð fræðibóka og -greina. Í upphafi er varpað fram spurningunni „hvers vegna ætti að nota verkefnamiðaða tungumálakennslu?“, og síðan er leitast við að svara henni með rökum og ígrundun. Það felst í því að fara ofan í kjölinn á því hvað verkefnamiðuð tungumálakennsla er og á hverju hún byggir, hver hugmyndafræðin er. Fjallað er um skilyrði fyrir verkefnamiðaðri tungumálakennslu í notkun og að hverju þarf að huga sérstaklega. Þá er fjallað um hlutverk kennara og nemenda sérstaklega og þá gagnrýni sem verkefnamiðuð tungumálakennsla hefur sætt. Sérstaklega er fjallað um verkefnamiðaða tungumálakennslu í því samhengi að hún sé notuð í kennslu íslenskra byrjenda í dönskunámi og dæmi um notkun í skólastofunni eru gefin. Að lokum eru vangaveltur og ályktanir dregnar saman og spurningunni sem varpað var fram í upphafi, svarað með rökum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
verkefnamiðuð tungumálakennsla.pdf | 439,17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |