Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6480
Viðfangsefni þessa verkefnis var að skoða einingakubbaleik barna á leikskólum sem starfa eftir mismunandi hugmyndafræði. Eftirfarandi rannsóknarspurning var höfð að leiðarljósi við alla vinnu rannsóknarinnar: Á hvaða hátt hafa barnahópurinn, hlutverk kennara og umhverfið áhrif á leik barna með einingakubba í leikskólum sem starfa eftir Hjallastefnunni annars vegar og hugmyndafræði Reggio Emilia hins vegar? Tilgáta okkar að svari er: Við teljum að umhverfið hafi síður truflandi áhrif í skólum sem starfa eftir Hjallastefnunni en þeim sem starfa eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Einnig að kennarinn styðji betur við leik barna í Reggio Emilia skólum en að barnahópurinn hafi sömu áhrif á leikinn í báðum stefnum.
Við öflun sem og úrvinnslu gagna voru notaðar eigindlegar rannsóknaraðferðir, nánar tiltekið vettvangsathuganir sem teknar voru upp á myndband. Við val á leikskólum var stuðst við hentugleikaúrtak.
Niðurstöður okkar eru þær að barnahópurinn styður við leikinn og að umhverfið hefur síður truflandi áhrif í leikskólum Hjallastefnunnar en í leikskólum sem starfa eftir aðferðum Reggio Emilia líkt og tilgáta okkar lagði til. Aftur á móti styður kennarinn ekki eins mikið við leikinn og við áttum von á í þeim skóla sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Einingakubbaleikur_i_leikskolum_sem_starfa_eftir_olikum_stefnum.pdf | 13.7 MB | Lokaður | Heildartexti |