Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/6503
Markmið verkefnisins er að kanna hvaða þættir eru mikilvægir í yfirfærslu barna úr leikskóla í grunnskóla. Verkefnið felst í því að rannsaka hvernig kennarar í 1. bekk í grunnskóla líta á þessa yfirfærslu, hvernig staðið er að henni í þeirra grunnskóla og hvað þeim þykir mikilvægast í samstarfi leikskóla og grunnskóla til þess að tengja saman skólastigin. Gerð var eigindleg rannsókn, þar sem tekin voru viðtöl við grunnskólakennara úr tveimur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Stuðst var við rannsókn Jóhönnu Einarsdóttur, Frá leikskóla til grunnskóla: Aðferðir til að tengja skólastigin.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að kennararnir voru sammála um það að mikilvægast í yfirfærslu barna úr leikskóla í grunnskóla væri að börnin sæju og upplifðu skólann. Með því að kynnast því hvernig hann er í raun og veru, þannig að þau hafi ekki ranghugmyndir og séu ekki að koma í umhverfi sem þau hafa aldrei séð.
Út frá þessum niðurstöðum er hægt að álykta að gott samstarf á milli leikskóla og grunnskóla hjálpi börnum við það að takast á við þær breytingar sem eiga sér stað við upphaf grunnskólagöngu.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokeverkefni B.Ed..pdf | 177.95 kB | Locked | Heildartexti |