Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6512
Ritgerð þessi er heimildaritgerð þar sem fjallað er um stærðfræðinám ungra barna og þróun stærðfræðihugsunar þeirra. Var þá sérstaklega horft til barna á leikskólaaldri. Í aðalnámskrá leikskóla er hvergi beint minnst á stærðfræði eða stærðfræðinám en leikskólar geta, með því að bjóða upp á námsumhverfi sem inniheldur viðfangsefni sem eru ögrandi, gert stærðfræðinám barna markvissara. Leitað var í heimildum að því hvað væri stærðfræði og í hvaða mynd hún birtist ungum börnum. Fjallað var um helstu inntaksþætti í stærðfræðinámi ungra barna og kenningar fimm hugmyndafræðinga voru skoðaðar. Greint var hvernig þeir litu á að ung börn lærðu og þroskuðust, en jafnframt skoðað hvernig hugmyndir þeirra tengjast inn í starf leikskóla. Einnig var farið inn á leikinn og hann skoðaður með tilliti til hvernig stærðfræði fléttast inn í hann. Tekin voru dæmi um einingakubbana þar sem þeir eru leikefni sem til er í mörgum leikskólum og sýnt hvernig hægt væri að nota þá í tengslum við stærðfræðinám á þessu fyrsta skólastigi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaeintak ritgerðar í pdf formi.pdf | 798.66 kB | Lokaður | Heildartexti |