Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/6536
Í tilviksrannsókn þeirri sem hér er fjallað um er rýnt gaumgæfilega í fésbækur nokkurra unglinga og kannað á hvern hátt talmálsáhrif birtast í hinu óformlega ritmáli fésbókarinnar. Rannsakandi fékk leyfi til að bæta átta nemendum úr 8. bekk grunnskóla í Reykjavík við fésbók sem stofnuð var sérstaklega af þessu tilefni. Tilgátan sem lögð var til grundvallar er sú að ritmál unglinga á fésbókinni beri mikinn svip af talmáli. Um tilviljunarúrtak var að ræða og var stuðst við þversniðsrannsókn. Rannsakandi vann sjálfur úr textanum og fann dæmi sem sýndu fram á aukin talmálsáhrif í ritmáli fésbókarinnar.
Á fésbókinni má finna ýmis dæmi um nýyrði eins og til dæmis „gærið“ í merkingunni gærdagur, gærkvöld eða stytting á orðasambandinu „í gær“. Notkun lýsingarorða virðist vera á undanhaldi og tákn og myndir leysa þau af hólmi. Setningar byrja í ríkari mæli á sögnum. Frjálslega er farið með sérnöfn og í sumum tilvikum fá þau viðbættan greini, t.d. smáranum (Smáralindinni). Þá er iðulega horft framhjá reglum um stóran og lítinn staf. Oft renna orð saman í eitt, elskykkur eða eitt orð er ritað sem tvö, straeto timi.