Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/6537
Í þessari ritgerð er fjallað um rannsókn sem gerð var til að skoða þær aðferðir sem notaðar eru við að hjálpa nemendum að skilja það sem þeim er fyrirlagt að lesa í skólanum. Rannsóknin var gerð í Grunnskóla Hornafjarðar í mars og apríl 2010 og var hún unnin á þann hátt að skoðaðar voru kennsluaðferðir í tveimur árgöngum, 7. – 8. bekkjum. Undirrituð sat í kennslustundum og fylgdist með aðferðum kennara og ræddi við þrjá nemendur í 7. bekk. Rannsóknin er eigindleg vettvangsrannsókn. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að lítið er um markvissar kennsluaðferðir í lesskilningi.
Niðurstöður PISA og PIRLS rannsókna eru skoðaðar og í ritgerðinni er að finna leiðir sem hægt er að nota til hjálpar nemendum við lesskilning.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
341ms loka.pdf | 313.92 kB | Open | Heildartexti | View/Open |