Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6568
Viðfangsefni þessara fræðilegu ritgerðar er að fjalla um yfirfærslu sértækrar félagsþjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hvaða hugsanlega ávinninga sú yfirfærsla getur haft í för með sér. Einnig er það markmið verkefnisins að kynna fyrir lesandum þróun málefna fatlaðra, stefnu stjórnvalda og sveitarfélaga varðandi yfirfærslu. Til þess að geta áttað sig á hver hugsanlegur ávinningur er af yfirfærslunni fjallar höfundur um verkefni Félagsmálaráðuneytisins, hið svokallaða Reynslusveitarfélagsverkefni og leggur höfundur aðaláherslu á að kynna reynslu og árangur sem náðst hefur með samþætta félagsþjónustu á Akureyri. Með þessu verkefni verður vonandi opnaður umræðu grundvöllur fyrir hinn venjubundna leikmann um hvað felst í yfirfærslunni og hver er ávinningur af henni fyrir notanda, sveitarfélög og ríkið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirfærsla sértækrar félagsþjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga.pdf | 720,94 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |