en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/656

Title: 
  • Title is in Icelandic Hvað ungur nemur gamall temur : starf með yngstu börnum leikskólans og hlutverk leikskólakennarans
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Á undanförnum árum hefur þjóðfélagið breyst mikið á Íslandi og hefur þróunin leitt til
    þess að konur fara fyrr út á vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof en áður. Sú krafa hefur
    verið uppi í samfélaginu að börn fari yngri í leikskóla. Vegna langs vinnutíma foreldra
    hefur þetta leitt til að mörg börn eru megnið af vökutíma sínum í leikskóla. Í
    vettvangsnámi okkar og starfi höfum við tekið eftir því, að starf með yngstu börnum í
    leikskólanum hefur oft verið vanmetið. Við vildum nota það tækifæri sem lokaritgerð er,
    til að dýpka þekkingu okkar á aldurshópnum.
    Það er áhugavert að skoða hvað örvun og góð umönnun hefur mikil áhrif á þroska
    ungra barna og hvað hún skiptir miklu máli fyrir barnið seinna meir á lífsleiðinni.
    Mikilvægt er að foreldrar og aðrir uppalendur geri sér grein fyrir hversu áhrifaríkir þessir
    grunnþættir hafa á uppeldi ungra barna.
    Eins og fram kemur dvelja börn stóran hluta dagsins í leikskólum og má leiða af
    því líkum, að hlutverk leikskólakennarans sé mikið þegar kemur að uppeldi og menntun
    barna. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að í leikskólunum starfi vel menntað fólk sem geri
    sér grein fyrir hvernig þroski ungra barna á sér stað. Að það átti sig á að það er fyrirmynd
    barnanna og geti haft mikil áhrif á þroska barnsins, þannig að börnin verði góðir og nýtir
    þegnar í þjóðfélaginu.

Description: 
  • Description is in Icelandic Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Accepted: 
  • Jan 1, 2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/656


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Efnisyfirlithvadungurnemurgamalltemur.pdf21,46 kBOpenHvað ungur nemur - efnisyfirlitPDFView/Open
Heimildaskrahvadungurnemur.pdf30,58 kBOpenHvað ungur nemur - heimildaskráPDFView/Open
Hvadungurnemurgamalltemur.pdf272,39 kBMembers (UNAK)Hvað ungur nemur - heildPDF
UtdratturHvadungurnemur.pdf12,71 kBOpenHvað ungur nemur - útdrátturPDFView/Open