Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6576
Þegar hækkun á verðlagi er viðvarandi í ákveðinn tíma er talað um verðbólgu en hún hefur verið talsvert mikil á Íslandi undanfarna áratugi. Sjaldnast hefur verið um verðhjöðnun að ræða hér á landi og fór verðbólgan hæst í 84.3% yfir tólf mánaða tímabil árið 1983 og hefur verið að meðaltali 15.9% á ári frá árinu 1940 til dagsins í dag. Þetta er gríðarlega mikil verðbólga í ljósi þess að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands sem tekið var upp 2001 er 2,5% með vikmörk upp á 1,5%. Frá upptöku þess hefur verðbólgan verið 6,4% að meðaltali á ári og vantar því nokkuð upp á að markmið Seðlabankans náist.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerð_Freyja_Fanndal_Sigurjónsdóttir.pdf | 890.6 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |