Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/6579
Markmiðið með rannsókninni var að kanna hvaða áhrif það hafi haft á hreyfingu barna í Reykjanesbæ að gefa frítt í sund. Fjögur ár voru liðin frá því að Reykjanesbær hóf að gefa börnum frítt í sund. Þátttakendur voru grunnskólabörn sem mættu í sund á almenningstíma. Notast var við spurningalista sem starfsfólk lagði fyrir börnin, rannsakandi fylgdist með og skráði niður upplýsingar um atferli. Tilgátan var sú að það að gefa frítt í sund hafi aukið á hreyfingu barna sem ekki stunda íþróttir í frístundum.
Helstu niðurstöður voru að mikil aukning var á aðsókn barna eftir að gefið var frítt í sund. Aukning á aðsókn barna jókst að meðaltali um 10.175 heimsóknir á ári á árunum 2006-2009 og aðsókn fullorðinna jókst að meðaltali um 8.777 heimsóknir á ári sömu ár. Hlutfall á heildarheimsóknum barna sem ekki æfðu íþróttir var 45%. Um helgar var meirihluti þeirra barna sem komu í sund börn sem æfðu íþróttir eða 64%. Átta og tólf ára börn voru duglegust að mæta í sund en mikið dró úr aðsókn eftir að börnin náðu 14 ára aldri. Börnin voru mest að leik í sundlauginni og eyddu meirihluta tímans í meðalerfiða hreyfingu.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrif á hreyfingu barna í Reykjanesbæ.pdf | 1.37 MB | Open | View/Open |