Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6622
Markmið þessarar ritgerðar var að fá viðhorf fyrrverandi fanga í Bandaríkjunum upp á yfirborðið og athuga hvernig þeir upplifðu fangelsismenningu þar sem þeir voru vistaðir. Viðhorf þeirra voru svo borin saman við bandaríska menningu í ljósi kenninga Geert Hofstede um einstaklinsmiðaða/sameignarmiðaða menningu og lárétta/lóðrétta stigskipan og kenningar Edwards Hall um samhengisþrönga/samhengisvíða menningu.
Notast var við blandaða, eigindalega rannsóknaraferð í formi spurningalista. Spurningarnar voru opnar, viðmælendur skrifuðu svörin niður og sendu tilbaka í tölvupósti. Það kom í ljós að munurinn á fangelsismenningu í Bandaríkjunum og frjálsri menningu birtist helst í því að bandarísk fangelsimenning hefur mjög lóðrétta stigskipan, er sameingarmiðuð og samhengisvíð/samhengisþröng í bland, á meðan frjáls menning þar í landi hefur frekar lárétta stigskipan, er einstaklingsmiðuð og er samhengisþröng.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð - Jónína Sólborg Þórisdóttir - Loka.pdf | 1.07 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |