Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6623
Íslenskum borgurum ber lögbundin skylda til greiðslu á skatti til hins opinbera hvort sem þeim líkar betur eða verr. Hugarfar skattborgarans gagnvart þessari skyldu getur verið misjafnt og verður það í sumum tilfellum þess valdandi að aðilar sniðganga lögin til þess að lækka skatta sína. Löggjafinn hefur sett ýmis ákvæði í lög nr. 90/2003 um tekjuskatt sem eiga að sporna við því að skattaðilar eigi möguleika á að sniðganga löggjöfina. Í þessari ritgerð verða þessi ákvæði tekin til skoðunar og kannað verður hvernig þau hafa fyrirbyggjandi áhrif á skattasniðgöngu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerð - Grétar Þór Jóhannsson.pdf | 525.79 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |