Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6632
Rit þetta er lokaverkefni til B.A. gráðu í þroskaþjálfun við Háskóla Íslands. Í því leitast ég við að svara spurningunni; hvað skiptir máli við forþjálfun lesturs. Einnig leita ég svara við hverjar séu helstu sértæku aðferðirnar við forþjálfun lesturs sem beitt er í nokkrum leikskólum Reykjavíkurborgar og Öskjuhlíðarskóla.
Í upphafi ritgerðarinnar eru eftirtalin hugtök skilgreind; lestur, forþjálfun lesturs, lesþroski og málþroski. Því næst er fjallað um gildi þessara þátta fyrir forþjálfun lesturs og hlutverk umönnunar- og uppeldisaðila og þroskaþjálfa, sérstaklega við að hlú að þroska barna og stuðla þannig að því að þau verði betur í stakk búin að læra að lesa. Lykilorðin í því samhengi eru forþjálfun lesturs, lesþroski og málþroski.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B A Eyrún-forþjálfun_3.pdf | 508,41 kB | Lokaður | Heildartexti |