Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/667
Í þessari ritgerð hefur höfundur unnið viðbúnaðar- og viðbragðsáætlun fyrir leikskólann
Suður-Vík, byggða á þekkingu á eðli eldstöðvar undir Mýrdalsjökli sem ber heitið Katla.
Jarðfræði hennar og saga fyrri gosa hefur gert yfirvöldum kleift að hanna viðbragðs- og
viðbúnaðaráætlanir sem grípa þarf til ef/þegar gos í Kötlu hefst. Slíkar áætlanir ná
hinsvegar nær einungis til ytra umhverfis, en ekki innra skipulags stofnanna á borð við
leikskóla sveitarfélagsins.
Náttúrufegurðin í Mýrdalnum er einstök og íbúar svæðisins öfundsverðir af
búsetu sinni. En þrátt fyrir friðsæld og stóíska ró, sem oft er sögð einkenna Skaftfellinga,
vita Mýrdælingar vel af ógninni sem þeir búa við. Þessi ógn er sú, að undir jöklinum sem
yfir sveitinni gnæfir, kraumar eldstöðin Katla. Eldstöðin á sína sérstöku jarðfræðisögu og
samkvæmt gossögu hennar getur hún gosið hvenær sem er. Vísindamenn fylgjast vel með
hegðun eldstöðvarinnar og gera viðvart ef vart verður við óróleika innan hennar sem
benda til goss. Þá fara í gang hinar ýmsu áætlanir á vegum stjórnvalda, til að auka öryggi
íbúa svæðisins við slíkar nátúruhamfarir. Sú ógn sem stafar af því að búa í nágrenni
Kötlu má ekki gleymast og viðbúnaður og fræðsla fyrir hverja kynslóð þarf að vera í örri
þróun. Íbúum til hægðarauka í því starfi hefur sú kynslóð sem uppi var við síðustu gos
skráð greinargóðar lýsingar á fyrri gosum, sem kynslóðin sem tekin er við núna getur nýtt
sér við viðbúnaðarstörf á svæðinu. Síðast varð gos í Kötlu árið 1918 og er í dag árið
2007, talað um, að það sé komin tími á næsta gos. Nýverið fór fram æfing á þeim
viðbúnaði sem í gang fer ef gos virðist yfirvofandi og við þá vinnu sá höfundur vankanta
á viðbúnaði innan leikskóla byggðarlagsins og ákvað því til bóta, að vinna að gerð
viðbúnaðar- og viðbragðsáætlunnar fyrir leikskólann. Einnig vann höfundur þemaverkefni
í leikskólanum í góðu samstarfi við björgunarsveit staðarins, til að kynna
börnunum þá aðila sem munu verða mest áberandi ef kemur til viðbúnaðar- og hættustigs
í þorpinu. Það er mat höfundar að nauðsynlegt sé að viðhalda reglulegu viðbúnaðarstarfi
meðal íbúa svæðisins. Sífellt kemur ný kynslóð þessara íbúa, sem þarf að tileinka sér það
að búa með eldstöðina Kötlu í miklu návígi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlitpdfskjal.pdf | 41.56 kB | Opinn | Þegar Katla gýs - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heildarpdf.pdf | 2.35 MB | Takmarkaður | Þegar Katla gýs - heild | ||
Heimildaskrápdfskjal.pdf | 84.44 kB | Opinn | Þegar Katla gýs - heimildarskrá | Skoða/Opna | |
Útdrátturpdfskjal.pdf | 56.87 kB | Opinn | Þegar Katla gýs - útdráttur | Skoða/Opna |