is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6671

Titill: 
  • Gæðakerfi ALCOA Fjarðaáls : innleiðing ABS gæðamenningar
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerðin skoðar og rannsakar hugmyndafræði sem hefur verið ofarlega á baugi þegar kemur að umræðu um framleiðslu- og gæðakerfi. Fyrirtækið sem rannsóknin fór fram í er
    nýjasta álverksmiðja innan ALCOA, en ALCOA er frumkvöðull í framleiðslu á áli og vörum unnum úr áli. Í fræðilega hlutanum er fjallað ítarlega um framleiðslukerfi Toyota, sem er grunnur að gæðakerfi ALCOA, ABS. Angi þessarar hugmyndafræði hefur verið
    rannsakaður af vestrænum háskólum og hefur verið nefndur „lean“. Það verkefni að innleiða nýja hugmyndafræði í íslensku fyrirtæki og af þeirri stærðargráðu sem verksmiðja Fjarðaáls í Reyðarfirði er, hefur líklega ekki verið framkvæmt áður hér á
    landi. Rannsóknin er því að skoða hvernig þessi framkvæmd hefur tekist og hvað hægt er að virkja í íslenskri fyrirtækjamenningu til þess að styrkja innleiðinguna. Helstu niðurstöður eru þær að hægt er að innleiða gæðakerfi á þessum grunni í íslenskri
    verksmiðju og hlutverk þess er allmikið í upphafi. Vandkvæði í íslenskri fyrirtækjamenningu geta þó tafið innleiðingu og þá helst agaleysi. Mikilvægur þáttur kaizen-aðferðafræðinnar og staðlaðs verklags helst í hendur við þekkingu og það að
    leggja áherslu á fólk með tilliti til öryggis. Þessir þættir eru til þess fallnir að skapa gæðamenningu innan fyrirtækis.

Samþykkt: 
  • 22.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6671


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gæðakerfi Fjarðaáls_Hjálmar S Elíesersson efnisyfirlit.pdf131.91 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Gæðakerfi Fjarðaáls_Hjálmar S Elíesersson heimildaskrá.pdf59.19 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
Gæðakerfi Fjarðaáls_Hjálmar S Elíesersson meginmál.pdf521.87 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
Gæðakerfi Fjarðaáls_Hjálmar S. Elíesersson_forsíða.pdf8.71 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna