is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12319

Titill: 
  • Verkefnastjórnun: Af hverju misheppnast verkefni?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Aðferðafræði verkefnastjórnunar er notuð í auknum mæli við skipulag verkefna hér á landi og var það kveikjan að þessari rannsókn. Tilgangurinn var að varpa ljósi á ástæður þess að verkefni misheppnast. Blönduðum rannsóknaraðferðum var beitt við öflun gagna. Spurningakönnun var send á 207 ólíkar skipulagsheildir og var svarhlutfall 61%. Til að dýpka skilning á viðfangsefninu voru tekin eigindleg viðtöl við sex einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að starfa við verkefnastjórnun en á ólíkum starfsvettvangi.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þeim mun nákvæmari sem skipulagsvinna verkefnis er, þeim mun meiri líkur eru á því að verkefnið heppnist. Einnig kom fram í eigindlegum viðtölum að mikilvægara er að verkefnastjórinn búi yfir leiðtoga- og stjórnunarhæfileikum heldur en að hann hafi þekkingu á öllum þáttum verkefnisins. Athyglisvert var hversu margir sýndu rannsókninni áhuga og fór svörun langt fram úr væntingum.

Samþykkt: 
  • 26.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12319


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
verkefnastjornun_HB_HV.pdf1.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna