Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20497
Í lokaverkefni þessu var hannað og smíðað reiknilíkan fyrir Olíudreifingu til að besta hagkvæmustu stærðir eldsneytisbirgðageyma á bensínstöðvum við útskipti á eldri geymum. Með notkun reiknilíkansins er ætlunin að draga úr samanlögðum flutnings- og birgðahaldskostnaði með vali á hagkvæmustu geymastærðum.
Reiknilíkanið var sett fram á stærðfræðilegu formi sem gerir auðveldara að yfirfæra það á önnur form til útreikninga, s.s. Excel eða bestunarforritum.
Líkanið var prófað á nokkrum bensínstöðvum sem þóttu reyna á ítrustu tilvik sem fyrirfinnast meðal bensínstöðva sem Olíudreifing sér um áfyllingu á. Niðurstaða gaf vísbendingu um að reiknilíkanið væri nothæft til þeirra verka sem ætlast var til af því.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sigurjón Þórsson 210586-2969 - Hagkvæmasta stærð eldsneytisbirgðageyma á bensínstöðvum - Prentskil 08.01.2015.pdf | 2.3 MB | Lokaður til...31.01.2135 | Heildartexti |
Athugsemd: Aðgangur að lokaverkefni er varanlega lokaður. Aðeins er hægt að fá leyfi til að nálgast verkefnið með samþykki höfundar OG samþykki forstöðumanns dreifingarsviðs Olíudreifingar ehf.