is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7648

Titill: 
  • Hagkvæmnisathugun á nýtingu glatvarma og uppsetningu varmadælu samhliða uppþíðingartanki
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessa verkefnis er að framkvæma hagkvæmnisathugun á þremur mismunandi orkugjöfum sem ætlaðir eru til að skaffa uppþíðingartanki volgu vatni. Orkugjafarnir sem um ræðir eru rafhitun, gashitun og varmadæla og fer hagkvæmnisathugunin fram á tveimur ólíkum stöðum, í Danmörku og á Spáni. Annar stór þáttur í þessu verkefni er nýting glatvarma frá frystikerfum.
    Tveimur aðferðum er beitt við útreikninga en niðurstöður úr forritinu EES eru hafðar í öndvegi í arðsemisútreikningum.
    Niðurstöður leiða það í ljós að gashitun sé ódýrasti kosturinn og rafhitun sá dýrasti. Varmadæluframkvæmdir koma ágætlega út og eru t.a.m. ódrýari kostur heldur en rafhitun á báðum stöðum. Ekki er ólíklegt að varmadæluframkvæmd verði innan fárra ára orðin hagkvæmasti kosturinn samhliða uppþíðingartanknum, að því gefnu að ytri aðstæður séu þeim í hag.

Samþykkt: 
  • 2.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7648


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hagkvæmnisathugun á nýtingu glatvarma og uppsetningu varmadælu samhliða uppþíðingartanki.pdf4.33 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna