Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16228
Átraskanir eru geðlægir sjúkdómar sem geta haft alvarlegar afleiðingar, bæði á líkama og sál. Batahorfur eru slæmar og einstaklingar losna jafnvel aldrei úr viðjum þeirra en talið er að aðeins helmingur átröskunarsjúklinga nái fullum bata. Þó að orsakir sjúkdómsins séu enn óljósar, hafa sálfræðileg meðferðarúrræði sýnt árangur. Vaxandi áhugi vísindasamfélagsins er á hreyfingu, með ákveðnum formerkjum, og jóga sem viðbót við hefðbundnar meðferðir. Rannsóknir á sviði átraskana, hreyfingar og jóga skortir aðferðafræðilega framkvæmdarþætti. Þó má draga af þeim þær ályktanir að hreyfing, sér í lagi jógaiðkun, með áherslu og gjörhygli og meðvitað hugarástand, gæti mögulega verið gagnleg viðbót fyrir einstaklinga með átröskun, einna helst í þeim tilgangi að mynda á ný heilbrigð og skynsamleg tengsl við hreyfingu og mat. Hlutverk íþróttafræðinga í meðferð átröskunarsjúklinga hefur ekki verið skilgreint en mikilvægt er að þeir búi yfir þekkingu á sjúkdómnum til að geta greint einkenni hans og sinnt fræðslu og forvarnarstarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKAVERKEFNI.pdf | 919.89 kB | Lokaður til...15.05.2133 | Heildartexti |