Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6994
Í þessari rannsókn er leitast við að sjá hvaða aðferðir
skólameistarar nota til þess að halda í og styrkja kennara
í framhaldsskólum. Í því samhengi var skoðað hvaða
möguleika skólameistarar hafa samkvæmt lögum,
reglugerðum og kjarasamningum. Leitað var til níu
skólamestara að veita viðtöl um þetta efni. Rannsóknin er
eigindleg þar sem viðtölin við skólameistarana eru borin
saman við þau fræði sem notuð voru við uppbyggingu
ritgerðarinnar og til eru um þetta efni.
Helstu niðurstöður eru þær að skólameistarar virðast
nota fjölbreyttar aðferðir við stjórnun framhaldsskóla
og starfsmannahald. Möguleikar þeirra á að hafa áhrif
á kennara til góðra verka og eflingar í starfi eru miklir.
Bundið er í lög, reglugerðir og kjarasamninga að kennarar
eiga að viðhalda starfshæfni sinni en skólameistarar
virðast fara varlega að beita þessum atriðum af krafti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaritgerd_thor.pdf | 536,13 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
lokaritgerd_thor_efnis_heimild.pdf | 2,61 MB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna |