Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7093
Í þessari ritgerð er fjallað um mögulegan eiginleika hrossa til að binda tannin. Engar rannsóknir hafa verið birtar á þessu sviði svo óljóst er hvort hross hafa þennan eiginleika, en þegar tekið er tillit til þróunarfræðilegs bakgrunns þeirra er það ekki er óhugsandi. Dýr sem lifa á runnagróðri búa yfirleitt yfir eiginleikanum til að binda tannin þar sem runnafæði er mjög tanninríkt. Grasbítar aftur á móti þurfa síður á þeim eiginleika að halda þar sem gras inniheldur ekki tannin. Hestar voru runnaætur fyrst þegar þeir komu fram á sjónarsviðið og þróuðust síðar yfir í að vera grasbítar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.S. LOKARITGERÐ - Aníta Ólöf Jónsdóttir.pdf | 1,03 MB | Opinn | Skoða/Opna |