Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7162
Í mjög stuttu máli má segja að milliverðlagning fjalli í skattaréttarlegu tilliti um þau vandamál sem skapast við verðlagningu í viðskiptum tengdra aðila. Eins má segja að milliverðlagning snúist um það að skattlagning eigi sér stað þar sem verðmætin verða til. Skattaréttarleg vandamáli í tengslum við milliverðlagningu eru þess eðlis að lausn á þeim krefst helst aukinnar samvinnu ríkja heims. Nokkuð hefur áunnist í þeim efnum, einkum á vettvangi OECD. Ritgerð þessari er ætlað að gefa heildarmynd af þeim lögum og reglum sem gilda um milliverðlagningu í alþjóðlegu samhengi.Ennfremur verður milliverðlagslöggjöf þriggja landa skoðuð, ásamt því að leitast verður við að svara þeirri spurningu hvort þörf sé á lögfestingu sértækra milliverðlagsreglna á Íslandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Guðmundur Njáll.pdf | 1.1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |