Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/725
Miklar breytingar hafa orðið á sjónvarpsáhorfi Íslendinga enda hefur
fjölmiðlamarkaðurinn breyst mikið á skömmum tíma. Í þessari rannsókn er leitast við að
varpa ljósi á það sem börn og unglingar á aldrinum 10 til 15 ára kjósa að horfa á í
sjónvarpi. Notast var við gögn úr langtímarannsókninni Börn og sjónvarp á Íslandi frá
árinu 2003 sem náði til barna á þremur stöðum á landinu, í Reykjavík, Vestmannaeyjum
og á Akureyri. Upplýsingar um sjónvarpsáhorf voru fengnar með því að láta þátttakendur
fylla út þar til gerða dagbók og kom þá fram allt það efni sem þau höfðu horft á vikuna
12. til 18. mars. Hér er veitt yfirsýn yfir þá dagskrárliði sem mest áhorf var á hvern dag
vikunnar. Allt það efni sem var á dagskrá umrædda viku var síðan flokkað í 13 sérstaka
efnisflokka til að greina hvort aldurs- eða kynjabundinn munur væri á sjónvarpsáhorfinu.
Í ljós kom að raunveruleika- og gamanefni er vinsælast hjá krökkunum og að stúlkur
horfa marktækt meira en piltar á þessa tvo efnisflokka. Þá kom í ljós að yngstu krakkarnir
horfa meira en þau eldri á barnaefni og að elstu krakkarnir horfa meira á menningar-,
lífstíls-, og viðtalsefni. Ekki reyndist vera munur milli kynjanna eða aldursflokka hvað
varðar áhorf á annað efni. Stelpur reyndust horfa meira á sjónvarp yfirhöfuð en drengir. Á
þeim tíma sem könnunin var lögð fyrir má segja að íslensk börn hafi í raun í fyrsta skipti
haft raunverulegt val um hvað horft er á í sjónvarpi. Niðurstöðurnar eru því mikilsverð
vísbending um þá þróun sem kann að eiga sér stað á næstu árum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd-final-pdf.pdf | 675,54 kB | Opinn | Barnaefni - heild | Skoða/Opna |