Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/7297
Hér verður skoðuð þróun föðurímynda í þremur Walt Disney teiknimyndum, út frá fimm meginkenningum innan fjölskyldurannsókna, með karlafræðilegu sjónarhorni. Myndirnar eru: Bambi, The Lion King og Finding Nemo. Þær voru valdar vegna áberandi tengsla söguhetjanna við feður sína og með tilliti til vinsælda myndanna þegar þær komu út. Þegar föðurímyndirnar eru skoðaðar eru móðurímyndir hafðar til viðmiðunar þegar það á við, ásamt hefðbundnum staðalímyndum Walt Disney teiknimynda. Föðurímyndirnar má bæði greina í viðmóti feðranna gagnvart sonum sínum og í þroskasögu drengjanna sjálfra.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
ba-nbr.pdf | 260.58 kB | Open | Heildartexti | View/Open |