is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7312

Titill: 
  • Áhrif starfsleitarnámskeiða á trú atvinnuleitenda á eigin getu til náms- og starfsákvörðunartöku
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar er að skoða hvort starfsleitarnámskeið auki trú atvinnuleitenda á eigin getu til náms- og starfsákvörðunartöku. Rannsóknin byggir á blandaðri rannsóknaraðferð með megindlegum og eigindlegum gögnum. Gagna var aflað annarsvegar með styttri útgáfu sjálfsmatslistans Career Decision Self-Efficacy Scale (CDSE-SF) og hinsvegar með viðtölum til að öðlast skilning á reynslu og upplifun þátttakenda af starfsleitarnámskeiðum. Að auki notar höfundur kenningu fræðimannsins Jack Mezirow um umbreytingu í námi (e. transformative learning) til að meta áhrif kennsluaðferða starfsleitarnámskeiðanna.
    Helstu niðurstöður úr tölfræðilegum gögnum sýna að marktækur munur var á trú atvinnuleitenda á eigin getu til náms- og starfsákvörðunartöku fyrir og eftir námskeið, þ.e. hún mældist meiri eftir námskeiðið. Niðurstöður úr viðtölum við lykilþátttakendur rannsóknar sýna sömu tilhneigingu. Viðmælendur voru sammála um að námskeiðið auki trú á eigin getu til náms- og starfsákvörðunartöku sem einnig má greina í breytingu á framtíðarmarkmiðum og aukinni virkni eftir námskeið. Flestir lykilþátttakendur fóru á önnur námskeið eftir að þeir luku námskeiðinu.
    Kennsluaðferðir starfsleitarnámskeiðanna samræmast hugmyndum Mezirow um umbreytingaráhrif náms á þann hátt að atvinnuleitandinn endurskoðar hugmyndir um hver hann er og hvert hann stefnir með mati á eigin styrkleikum, sjálfseflingu og verkfærum sem nýtast í atvinnuleitinni. Þátttakendur töldu kennsluaðferðir sem felast í samræðu við aðra nemendur gagnlega og góða leið til að mynda nýja sýn á eigin starfsmöguleika.
    Niðurstöður rannsóknar sýna að starfsleitarnámskeið sem bjóða nemendum að meta eigin færni og útbúa framtíðarmarkmið geta haft þau áhrif að auka trú á eigin getu til ná árangri í atvinnuleit. Að auki geta starfsleitarnámskeiðin haft þau áhrif að þátttakendur sækja í meira nám en áður.

Samþykkt: 
  • 15.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7312


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA ritgerð feb 2011 Þór Hreinsson.pdf447.82 kBLokaðurHeildartextiPDF