Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7350
Í þessari ritgerð verða rannsakaðar skoðanir Gandhis á caste erfðastéttakerfinu. Byrjað verður að fjalla um hindúismann til að veita lesendum skilning á því hvernig kerfið var uppbyggt og hverju Gandhi var mótfallinn í því. Næst verður fjallað stuttlega um ævi Gandhis til að veita innsýn á hvaða mann Gandhi hafði að geyma og sýnt verður fram á upphaf baráttu hans gegn ósnertanleika og helstu áhrifavöldum á skoðanir hans um erfðastéttakerfið. Þá verður fjallað um skoðanir Gandhis á erfðastéttakerfinu og þróun þeirra út frá þremur þáttum: erfðastéttakerfinu sjálfu, skoðunum hans á boðum og bönnum um giftingar milli stétta og næst skoðanir hans á boðum og bönnum um borðhald fólks af ólíkum stéttum. Að lokum verður fjallað um skoðanaskipti Ambedkars og Gandhis um erfðastéttakerfið. Í lok þess kafla verður fjallað um þróun mála í stjórnmálum og stéttakerfismálum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gunnar Eyjólfsson_BA.pdf | 409,55 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |