Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7542
Viðfangsefni ritgerðarinnar er að leggja drög að markaðsáætlun vegna markaðssetningar fæðubótarefnisins Saga Pro sem fyrirtækið Saga Medica framleiðir úr íslenskri ætihvönn og hyggst markaðssetja í Svíþjóð. Saga Pro dregur úr næturþvaglátum sem er eitt einkenna góðkynja stækkunar blöðruhálskirtils. Áhersla ritgerðarinnar er á markaðsrannsóknir þar sem innra og ytra umverfi fyrirtækisins er greint og dregin fram helstu atriði sem teljast til samkeppnisyfirburða, styrkleika, veikleika, ógnana og tækifæra. Í kjölfarið eru lagðar fram hugmyndir um lykilþætti til árangurs, markmið og stefnumótun til þess að ná settum markmiðum. Helstu niðurstöður eru þær að samkeppnisyfirburðir og helsti lykilþáttur til árangurs reynast í megin dráttum vera sami hluturinn, klínísk rannsókn á Saga Pro. Einnig að fýsileiki sænska markaðarins sé nokkuð góður; meðal annars vegna vaxandi eftirspurnar og kaupmáttar og vegna hagstæðrar gengisþróunar. Lagt var til að fyrirtækið legði áherslu á kynningarmarkmið og mótaði stefnu til að ná þeim markmiðum. Útbúin yrði kynningaráætlun í framhaldi af stefnumótun þar sem áhersla væri á að koma réttum skilaboðum á réttan hátt til réttra aðila. Það er von höfundar að ritgerðin nýtist sem grundvöllur til ákvarðanatöku fyrir Saga Medica varðandi markaðssetningu Saga Pro í Svíþjóð.
Lykilorð:
Saga Medica
Fæðubótarefni
Markaðsrannsókn
Svíþjóð
Markaðsáætlun
The subject of this thesis is to prepare the marketing of a dietary supplement named Saga Pro, which the company Saga Medica produces from the Icelandic herb angelica and wants to market in Sweden. Main emphasis is on market research, where internal and external analyses are conducted and as a result; main weaknesses, strengths, opportunities, threats and competitive advantages are identified. Then ideas are presented on key success factors, marketing objectives and strategy. The main results were that the company´s competitive advantage and the industry´s main key success factor were in fact basically the same; a clinical research on Saga Pro. In addition, that the Swedish market appears to be positively feasible, due to increasing demand and disposable income, and positive exchange rate conditions for exporting. Suggestions were maid and explained about the company focusing on setting promotion objectives and deciding on promotion strategies as consequence. Furthermore that the company should conduct a promotion plan, stressing that correct messages should be conveyed through the correct media to the correct audience. The author of this thesis hopes that it will be of use as basis for decision-making concerning the marketing of Saga Pro in Sweden.
Keywords:
Saga Medica
Dietary supplement
Market research
Sweden
Marketing plan
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaútgáfa 10 jan.pdf | 894.15 kB | Opinn | Skoða/Opna |