Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7615
Í þessari ritgerð leitast höfundur við að greina dómaframkvæmd í forsjármálum á Íslandi gegnum tíðina, hvað ráði helst niðurstöðu og jafnframt kanna hvort út frá henni megi greina
hugsanlega mismunun á grundvelli kynferðis. Sú greining er byggð upp á dómum sem fallið hafa undanfarin ár, en höfundur taldi slíka greiningu skilvirkustu leiðina til að ná fram markmiðum ritgerðarinnar Einnig er farið er yfir þá löggjöf er að forsjármálum snýr, stiklað á stóru yfir réttarsvið viðfangsefnisins og fjallað á almennan hátt um viðfangsefnið. Einnig er fjallað um frumvarp sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á barnalögunum nr. 76/2003 sem höfundur telur ákaflega mikilvægt að verði leitt inn í landslög.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HJÖRTUR - LOKASKJAL.pdf | 880,95 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |