Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/7625
Eyjakeyrsla Skeiðsfossvirkjunar
Gerðar hafa verið breytingar á línukerfi RARIK frá Skeiðsfossvirkjun að Dalvík. Lágheiðarlína sem er með 33 kV rekstrarspennu verður lögð af en í staðinn kemur nýtt jarðstrengskerfi sem felur í sér tengingu frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Skeiðsfossvirkjun tengist Siglufirði, þaðan er tenging til Ólafsfjarðar og frá Ólafsfirði til Dalvíkur. 66 kV tenging frá Landsneti er frá Akureyri til Dalvíkur. Í daglegum rekstri næst að tappa launafli af kerfinu inn á landsnetið. Með nýja jarðstrengskerfinu eykst launaflsframleiðslan. Í þessu verkefni verður athugað hvort Skeiðsfossvirkjun geti tekið við því launafli sem verður til í kerfinu þegar um eyjakeyrslu er að ræða, þ.e.a.s. þegar tenging við landsnetið er ekki. Slík tilfelli geta komið upp í bilana- eða viðhaldstilfellum. Þetta kerfi hefur verið keyrt í eyjakeyrslu frá Skeiðsfossvirkjun að Dalvík (Dalvík ekki meðtalin). Ef virkjunin nær ekki að eyða launaflinu sem verður til í kerfinu er hugsanleg lausn að setja upp spólur í kerfinu.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Eyjakeyrsla Skeiðsfossvirkjunar.pdf | 3,96 MB | Open | Complete Text | View/Open |