Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7647
Markmið verkefnis var að hanna búnað inn í DN250 háhitarör með ytra þvermál plastkápu 450 mm. Það samanstendur af stálröri, steinull, einangrunarfrauði og plastkápu. Þessi búnaður á að koma í veg fyrir að stálrörið í miðju rörs skemmi ullina sem er fyrir utan rörið sökum þunga og hreyfingar.
Burðargrind var hönnuð og teiknuð í Inventor, svo voru gerðar spennugreiningar á henni og varmagreiningar á öllu rörinu niðurgröfnu. Það voru bæði gerðir handreikningar og ANSYS greiningar og niðurstöður bornar saman.
Grindin stenst það álag sem hún á að geta borið og varmaleiðnin í gegnum rörið er ekki of mikil fyrir þá íhluti sem eru viðkvæmir fyrir háum hita.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skýrslan Final-1.pdf | 1.73 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |