Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7654
Hlustið nú er lokaverkefni til B.Ed gráðu í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands – Menntavísindasvið. Verkefnið er í tveimur hlutum, greinargerð og æfinga- og leikjabók um hlustun. Í greinargerðinni er fjallað um hlustun, hvernig má efla hana, mikilvægi góðrar hlustunarhæfni og aðra þætti tengda hlustun.
Æfinga- og leikjabókin inniheldur hlustunaræfingar fyrir börn á aldrinum tveggja til fimm ára, skipt niður í þrjú aldursskeið. Í æfinga- og leikjabókinni er einnig fjallað lítillega um við hverju má búast af börnum á þessum ákveðnu aldursskeiðum. Markmið bókarinnar er að fá leikskólakennara til að sjá betur mikilvægi hlustunarkennslu í tengslum við málörvun. Hlustun er oft nefnd vanrækti hlutinn af tungumálanámi og því þarf að breyta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hlustið nú! leikjabók.pdf | 336,26 kB | Lokaður | Æfinga- og leikjabók | ||
Greinargerð, hlustið nú.pdf | 410,47 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |