Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/7669
Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed prófs við Menntavísindasvið í Háskóla Íslands. Fjallað er um mikilvægi verklegra greina í almennum grunnskólum og þátt þeirra í samþættingu við aðrar námsgreinar.
Greint er frá nokkrum fræðimönnum frá fyrri tíð og áherslu þeirra á verklegar greinar. Kenningar þeirra og þróunarstarf hafa stuðlað að verklegu námi í grunnskólum. Einnig gerðu þeir grein fyrir því uppeldisgildi sem verklegar greinar þjóna og þátt þeirra í að stuðla að alhliða þroska nemenda. Fjallað er um skilgreiningar á námi og hverju það á að skila í skólastarfi og að skóla loknum. Rætt er um verklegt nám og gildi þess í grunnskóla og í samþættingu námsgreina ásamt því að fjallað er um þátt sköpunar og nýsköpunar í skólastarfi. Þá er rætt um nokkrar skilgreiningar á samþættingu og hvaða gildi hún hefur í skólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gildi verklegra greina og samþætting þeirra við aðrar námsgreinar.pdf | 270 kB | Lokaður | Heildartexti |