Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/773
Markmið rannsóknarinnar var að meta hvernig ungir nemendur nota mál- og hlustunarskilning sinn auk ímyndunarafls til sköpunar í textíl. Samið var kennsluverkefni þar sem tekið var á ofangreindum þáttum. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð. Farið var á vettvang með frumsamda sögu og voru þátttakendur nemendur í öðrum og þriðja bekk tveggja skóla á höfuðborgarsvæðinu. Markverðustu niðurstöður voru þær að mál- og hlustunarskilningur nemenda var almennt góður, einnig náðu þeir að virkja ímyndunarafl sitt og tengja það sem þeir „sáu“ í huga sér við hlustuna á sögunni til sköpunar í textíl. Nemendur áttu almennt mjög auðvelt með að tjá sig munnlega og voru fljótir að tileinka sér ný orð og hugtök. Hlustun nemenda var misgóð eftir því hvað hlusta átti á, þ.e. hlustuna á sögu eða fyrirmæli kennara. Þeir voru með frjótt ímyndunarafl og áttu auðvelt með að skapa í textíl. Einnig sýndi það sig að nemendur aldir upp í textíl eru öruggari með sig, frjórri í hugsun og eiga auðveldara með að tileinka sér viðeigandi tækni í textíl við skapandi verkefni.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
1 Forsida.pdf | 51.15 kB | Open | Forsíða | View/Open | |
1.2 Titilsida framan.pdf | 14.36 kB | Open | Titilsíða að framan | View/Open | |
1.3 Titilsida aftan.pdf | 15.98 kB | Open | Titilsíða að aftan | View/Open | |
1.4 Kennsluritgerd 1. mai 2007_loka.pdf | 291.76 kB | Open | Meginmál | View/Open | |
2 Vidauki 1.pdf | 12.1 kB | Open | Viðauki 1 | View/Open | |
2.1 Kennsluverkefni .pdf | 11.97 kB | Open | Kennsluverkefni forsíða | View/Open | |
2.2 vidauki 1 kennsluvekefni.pdf | 101.34 kB | Open | Viðauki 1 kennsluverkefni | View/Open | |
2.3 vidauki 2.pdf | 18.2 kB | Open | Viðauki 2 | View/Open | |
2.4 vidauki 2 saga.pdf | 59.72 kB | Open | Viðauki 2 saga | View/Open | |
2.5 vidauki 3.pdf | 18.23 kB | Open | Viðauki 3 | View/Open | |
2.6 vidauki 3 skema.pdf | 46.95 kB | Open | Viðauki 3 skema | View/Open | |
2.7 vidauki 4.pdf | 18.03 kB | Open | Viðauki 4 | View/Open | |
2.8 vidauki 4.pdf | 44.24 kB | Open | Viðauki 4 gátlisti | View/Open | |
2.9 Vidauki 4 sjalfsmat.pdf | 47.1 kB | Open | Viðauki 4 sjálfsmat | View/Open |