is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23352

Titill: 
  • Heimspekin sýnir okkur heiminn : minning um Pál Skúlason (1945–2015)
  • Titill er á ensku Philosophy displays the world : in memory of Páll Skúlason (1945–2015)
Útgáfa: 
  • Ágúst 2015
Útdráttur: 
  • Páll Skúlason heimspekingur fjallaði um flest svið heimspekinnar og segja má að ásamt nokkrum öðrum heimspekingum hafi hann lagt grunn að íslenskri heimspekihefð. Viðfangsefnin hafa verið allt frá frumspeki til hagnýtrar heimspeki. Páll skrifaði fjölmargar greinar um menntun, gagnrýna hugsun, eðli háskóla og mikilvægi menntunar og lýðræðislegs skólastarfs fyrir farsælt samfélag, en greinin Menntun og stjórnmál frá árinu 1987 varð einmitt kveikja að mínum eigin skrifum um heimspeki menntunar. Það vekur athygli að þegar Páll ræðir erfiðustu mál samtímans á sviði stjórnmála og siðfræði þá snýr hann ævinlega að menntamálum. Því má segja um Pál, líkt og um John Dewey, að heimspeki hans sé ávallt öðrum þræði menntaheimspeki. Það einkenndi auk þess Pál sem heimspeking að hann vildi ekki einungis skilja tengsl manns og heims heldur vildi hann rækta þessi tengsl. Menntun, samkvæmt skilningi Páls, felst einmitt í ræktun þessara tengsla.

  • Útdráttur er á ensku

    Páll Skúlason wrote about most areas of philosophy and along with a handful of other philosophers created a philosophical tradition in Iceland. His topics range from metaphysics to practical philosophy. Páll Skúlason wrote many papers on philosophy of education, critical thinking, nature of universities and the importance of education and democratic schools for a flourishing society. His paper Education and politics from 1987 ignited my own writings on philosophy of education. It is noteworthy, that whenever discussing the most difficult issues of present times, Páll Skúlason always returns to education. One can, therefore, say about Páll Skúlason, that his philosophy, like that of
    John Dewey, is always in one way or another, a philosophy of education. It also characterizes Páll Skúlason as a philosopher, that he not only wanted to understand the relation of humans and the world, he wanted to cultivate these relations. Education, according to Páll Skúlason, is a cultivation of those very relations.

Birtist í: 
  • Netla
ISSN: 
  • 1670-0244
Samþykkt: 
  • 17.12.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23352


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ólafur Páll Jónsson- 2015 - Heimspekin sýnir okkur heiminn minning um Pál Skúlason- Netla.pdf417.22 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna