Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/796
Viðhorfið til þess að eldast er viðfangsefni þessarar rannsóknar. Markmiðið er
að fá skýrari mynd af því hvaða hugmyndir fólk gerir sér um efri árin. Það er farið í
smiðju fræðimanna frá ýmsum tímum til að skoða hugmyndir þeirra um atriði sem
tengjast því hvernig viðhorf einstaklingsins þróast og þroskast með hækkandi aldri.
Megin ásar umræðunnar eru: dygðir, virkni, virðing og að vera einhvers virði.
Fjallað er um kenningar um öldrun í samhengi við lífshlaup og þroska
einstaklinga. Kenningar um farsæla framvindu lífsins hafa nýverið litið dagsins ljós
og með þeim er nýtt sjónarhorn á öldrun kynnt. Rýnt er í greinar í dagblöðum og
tímaritum og síðan er farið á vettvang og tekin viðtöl við fólk sem komið er á efri ár.
Gripið er nokkuð tilviljanakennt niður í skrif lærðra og leikra en reynt að
forðast skrif með sjúkdóma, peningamál og stjórnmál að meginefni. Í viðtölum var
lagt upp með hvað fólk hefði að segja um það að eldast og að vera kominn á efri ár og
viðmælendum gefin lykilorðin: virðing, réttlæti og hamingja. Aldraðir í þjóðfélaginu
eru skilgreindir út frá lífaldri, en bæði í greinum og orðræðu vísar hugtakið oftast til
þeirra sem eru við lélega heilsu. Virðing er almennt talin dvínandi í samfélaginu og
umfjöllun um réttlæti er oft tengd fjármálum. Hamingjuefni aldraðra eru önnur en
þeirra sem yngri eru en ekkert bendir til að hamingja þeirra þurfi að vera minni en
unga fólksins.
Niðurstaðan úr umræðunum um það að vera gamall var í stórum dráttum sú að
flestir leggja sama skilning í það að vera gamall og það að vera heilsulaus.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hvernig er að vera aldr-efnisyfirlit.pdf | 9,87 kB | Opinn | Að vera aldraður - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Hvernig er að vera aldr-heimild.pdf | 11,1 kB | Opinn | Að vera aldraður - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Hvernig er að vera aldr-samsett.pdf | 1,28 MB | Takmarkaður | Að vera aldraður - heild | ||
Hvernig er að vera aldr-útdráttur.pdf | 7,15 kB | Opinn | Að vera aldraður - útdráttur | Skoða/Opna |