Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/8068
Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að skoða hvort að samband sé á milli starfsöryggis og starfsánægju rafvirkja á Íslandi. Einnig er skoðað hvaða þætti rafvirkjar eru ánægðir með í starfi sínu og hvort að sjálfstætt starfandi rafvirkjar upplifa meiri eða minni starfsánægju og starfsöryggi en þeir sem starfa hjá öðrum. Sendur var spurningalisti á félaga í Félagi íslenskra rafvirkja. 794 voru í úrtakinu og 369 tóku þátt í rannsókninni. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu jákvæða fylgni á milli starfsöryggis og starfsánægju. Einnig er hægt að draga þá ályktun að rafvirkjar á Íslandi séu ánægðir í starfi. Ekki er marktækur munur á starfsánægju og starfsöryggi sjálfstætt starfandi rafvirkja eða rafvirkja sem vinna hjá öðrum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð.pdf | 2,65 MB | Locked | Heildartexti |