Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/8085
Þessi ritgerð fjallar um feminisma og er leitast við að skilgreina hugtakið feminismi. Í ritgerðinni er farið yfir sögu feminismans, tildrög hans og þróun og gerð skil á bylgjunum þremur sem feminisminn skiptist í. Einnig er fjallað um mýtur feminismans og staðalímindir kynjanna. Jafnréttisbaráttunni eru gerð skil, bæði erlendri baráttu sem og innlendri. Í ritgerðinni er fjallað um meint bakslag í jafnréttismálum á Íslandi og er miðilinn bleikt.is og bókin Dömusiðir í brennidepli í þeirri umræðu, jafnframt því sem þriðja bylgja feminismans er tengd inn í umræðuna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba lokaloka.pdf | 490.99 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |