Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/808
Í þessari skýrslu kynni ég lokaverkefni mitt við Kennaraháskóla Íslands vorið 2007. Meðfylgjandi er handbók um jógaiðkun leikskólabarna, í henni kemur fram lýsing og rökstuðningur fyrir verkefninu. Með verkefninu reyni ég að sýna fram á að jógaiðkun getur tengst börnum og barnauppeldi á ýmsan hátt og getur verið mjög gagnleg kennsluaðferð. Handbókin er hugsuð sem stuðningur við þá kennara og leiðbeinendur sem áhuga hafa á að stunda jógaæfingar með börnum. Með handbókinni fylgir myndbandsdiskur þar sem æfingarnar eru sýndar betur til stuðnings og glöggvunar.