is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/810

Titill: 
  • Hagkvæmni tveggja vörpu togveiða
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Lykilorð: Greining, botnvarpa, veiðisvæði, arðsemi, mótstaða
    Á síðustu árum hefur olíuverð farið hækkandi sem eykur breytilegan
    kostnað útgerða skipa sem eru á orkufrekum veiðum. Togveiðar er ein
    orkufrekasta aðferðin við að veiða fisk, og hafa útgerðir leitað leiða til að
    lækka kostnað, eða fá meiri afla á hvert kíló af brenndri olíu. Ein
    þessara leiða hefur verið notuð á rækjuveiðum í mörg ár og það er að
    fjölga vörpum í sjó og toga með tveimur í einu og fá þá töluverða
    aukningu í afla á togtíma.
    Tilgangur þessa verkefnis er að greina þær upplýsingar sem fyrir liggja
    um skipið, Arctic Warrior og útgerðarmynstur þess, til að fá niðurstöður
    í afla á togtíma og meinta eyðslu.
    Uppbygging verkefnis er þannig, að farið er yfir fjármálafræði,
    skipaskilgreiningar, veiðisvæði eru skilgreind sem og veiðarfæri. Því
    næst eru greiningar á gögnum sem aflað hefur verið, bæði með eigin
    mælingum sem og gögnum frá útgerð, greind niður í smáatriði. Þegar
    búið er að greina tvö ár af upplýsingum niður í afla á togtíma þá er hægt
    að fara að leggja mat á væntanlega veiði og orkunotkun ef farið væri út í
    breytingar til að auka veiðigetu skipsins.
    Helstu niðurstöður eru þær, að álag skipsins við veiðar eins og staðan er í
    dag er sú að töluvert afgangs afl er eftir og því möguleiki á aukinni
    mótstöðu frá veiðarfærum. Miðað við þær forsendur sem gefnar voru í
    aukinni mótstöðu, vegna ákveðinna veiðarfæra, verður álag aðalvélar
    komið í hæstu mörk og ekki mikið afgangs afl eftir.
    Arðsemi af svona fjárfestingu er reiknuð með því að setja upp nokkra
    möguleika í auknum afla og aukinni olíunotkun á togtíma. Miðað við þá
    ávöxtunarkröfu sem útgerð gerir á eigin fé er verkefnið ekki að borga sig
    nema að afskriftir séu í lágmarki og tekin séu að lágmarki 10 ár í núvirði.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 02.05.2010
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/810


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Baldur M. Einarsson_Lokaverkefni.læst.pdf4.02 MBOpinnHagkvæmni tveggja - heildPDFSkoða/Opna
Baldur M. Einarsson_Lokaverkefni_efnisyfirlit læst.pdf20.8 kBOpinnHagkvæmni tveggja - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Baldur M. Einarsson_Lokaverkefni_heimildaskrá.læst.pdf34.73 kBOpinnHagkvæmni tveggja - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Baldur M. Einarsson_Lokaverkefni_útdráttur.læst.pdf33.11 kBOpinnHagkvæmni tveggja - útdrátturPDFSkoða/Opna