is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/8295

Titill: 
  • Framfærsluréttur vegna örorku
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er að kanna hvernig framfærsluréttur vegna örorku er verndaður í íslenskum rétti. Viðfangsefnið er afmarkað við ákvæði laga, sem veita einstaklingum rétt til framfærsluaðstoðar vegna örorku. Í upphafi er fjallað um vernd réttarins samkvæmt íslensku stjórnarskránni, kannað er hvað felst í ákvæði 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar og gerð er grein því að einstaklingar geta byggt efnislegan rétt á lágmarksframfærsluskilyrði ákvæðisins eftir Öryrkjabandalagsdóm 1. Einnig er fjallað um vernd framfærsluréttar í mannréttindasamningum sem Ísland er aðili að, og vikið að alþjóðasamningum sem geta haft óbein áhrif á framfærslurétt einstaklinga, með sérstakri áherslu á jafnræði borgaranna . Því næst er fjallað um hvernig rétturinn hefur þróast í íslenskri löggjöf frá upphafi íslandsbyggðar. Í 5., 6. og 7. kafla er síðan fjallað um þær greinar laga um almannatryggingar nr. 100/2007 sem kveða á um framfærsluréttinn með beinum hætti. Þessir kaflar eru hryggjarstykki ritgerðarinnar. Í 5. kafla er fjallað um 18. gr. ATL þ.e. örorkulífeyri, og skilyrði örorkulífeyrisgreiðslna. Í 6. kafla er fjallað um 19. gr. ATL þ.e. örorkustyrk, og skilyrði greiðslna örorkustyrks. Í 7. kafla er fjallað um önnur ákvæði sem veitt geta framfærslurétt. Að því loknu er fjallað um örorkubætur lífeyrissjóða. Í kafla 9 er þeirri spurningu velt upp hvort íslenska ríkinu hafi tekist að uppfylla stjórnarskrárbundnar og alþjóðlegar skyldur sínar. Þá er einnig fjallað um þær reglur sem gilda um eftirlit með stjórnsýslu almannatrygginga.

Samþykkt: 
  • 5.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8295


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
forsíða5.maí.pdf30.71 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
LOKA_SKILAÐ.pdf721.23 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna