Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/8312
Árið 2008 varð hrun í íslensku efnahagslífi. Spilling í fjármálalífi og stjórnmálalífi landsins er ein af orsökum hrunsins, en óljóst er hverjir bera ábyrgðina á þessari spillingu. Eftirfarandi ritgerð er tilraun til að leita skýringa á spillingunni í kenningum um valdaelítur (power elites). Frægasti valdahópur landsins; Eimreiðarhópurinn, er rannsakaður og ábyrgð hans á spillingunni í landinu fyrir hrun, metin. Teiknuð er mynd af fólki í kringum Eimreiðarhópinn sem gæti talist mynda ráðandi valdaelítu í landinu, í samráði viðskiptavalds, þekkingarvalds og ríkisvalds. Reynt er að gefa heildarmynd af meginþáttum spillingarorsakar efnahagshrunsins yfir langt tímabil frá valdatöku Eimreiðarhópsins í landsmálum árið 1991 til loka hrunsins 2008.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA-ritgerd-Thorvaldur-spilling17_rafr.pdf | 894.62 kB | Lokaður | Heildartexti |