en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/8518

Title: 
  • Title is in Icelandic Áhugahvöt unglinga í íþróttum. Er kynjamunur á áhugahvöt íslenskra unglinga í íþróttum?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Í ljósi þess hve íþróttaiðkun er börnum og unglingum mikilvæg er brottfall unglinga úr íþróttum áhyggjuefni. Þar sem brottfall virðist vera meira á meðal stúlkna en drengja og ein helsta orsök brottfalls er dvínandi áhugahvöt snérist rannsóknin um hvort munur væri á áhugahvöt kynjanna í íþróttum sem gæti mögulega skýrt það að brottfall væri meira á meðal stúlkna en drengja. Með þýddri útgáfu af „Participation motivation questionnaire“ spurningalistanum tókst að meta hvaða ástæður voru mikilvægastar fyrir íþróttaiðkun 90 þátttakenda rannsóknarinnar á aldrinum 12-16 ára. Tilgáturnar voru þrjár, fyrsta tilgátan, sem sagði að stúlkur teldu félagsskapinn mikilvægari ástæðu fyrir íþróttaiðkun sinni en drengir, stóðst ekki. Önnur tilgátan sagði að stúlkur teldu það að halda sér í formi mikilvægari ástæðu fyrir íþróttaiðkun sinni en drengir, sú tilgáta stóðst líkt og þriðja tilgátan sem var sú að drengjum finndist það að öðlast virðingu eða viðurkenningu vera mikilvægari ástæðu fyrir íþróttaiðkun sinni en stúlkum. Niðurstaða rannsóknarinnar varð því sú að munur fannst á hvötum kynjanna til íþróttaiðkunar og því er hugsanlegt að mismunandi áhugahvöt sé ástæðan fyrir meira brottfalli úr íþróttum á meðal stúlkna en drengja.

Accepted: 
  • May 16, 2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8518


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BS_ritgerd.pdf409.65 kBOpenHeildartextiPDFView/Open