Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/8549
Í þessari ritgerð eru Þjóðhátíðarlög Oddgeirs Kristjánssonar skoðuð í sögulegu og
tónfræðilegu samhengi. Athugað er hvort þróun eigi sér stað í tónsmíðum
laganna, þau borin saman út frá tóntegundanotkun, laglínum, útsetningum og
texta. Einnig er flutningsmáti laganna kannaður með hliðsjón af áhrifum flytjenda
á tónsmíðar. Saga laganna er sett í sögulegt samhengi þar sem áhrifaþættir
Þjóðhátíðar gagnvart lögunum eru kannaðir. Ferill Oddgeirs er rakin þar sem
einblínt er á hann sem tónlistarmann. Einnig er fjallað lítillega um sögu Þjóðhátíð
Vestmannaeyja og sögu hennar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd.pdf | 98.01 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |