is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10409

Titill: 
  • Fjarfundir í íslenskri stjórnsýslu. Tæknileg draumsýn eða raunhæfur kostur?
Efnisorð: 
Útgáfa: 
  • Desember 2011
Útdráttur: 
  • Markmið greinarinnar er annars vegar að kanna hversu oft forstöðumenn ríkisstofnana ferðast á fundi í störfum sínum og hvort þeir nýta sér fjarfundabúnað til fundahalda og hins vegar að kanna kjöraðstæður til fjarfundahalda. Rýnt er í fræðilega umfjöllun um verkefnishópa og reynslu þeirra af notkun fjarfundabúnaðar til fundahalda og skoðað hvaða tegundir hópa henta best til að nýta sér slíkt fundaform. Útbúin var netkönnun með spurningalista í þeim tilgangi að afla upplýsinga um fjölda ferða forstöðumanna ríkisstofnana á fundi sem tengjast daglegum störfum og reynslu þeirra af notkun fjarfundabúnaðar til fundahalda. Netkönnunin var send til allra skráðra félaga í Félagi
    forstöðumanna ríkisstofnana og sýna niðurstöður hennar að forstöðumenn íslenskra ríkisstofnana ferðast tiltölulega oft á fundi í sínum störfum, jafnt innan sinna sveitarfélaga sem utan. Það kom jafnframt fram að u.þ.b. ¾ forstöðu manna sóttu fjarfundi síðastliðna tólf mánuði. Almennt séð eru forstöðumenn jákvæðir með reynslu sína af fjarfundum og margir hverjir vilja sjá aukningu á því fundaformi í stjórnsýslunni. Þá sýndu niðurstöður að
    forstöðumenn eru meðvitaðir um að fjarfundir spari tíma og fjármuni fyrir stofnanir sínar en þrátt fyrir það virtist vera hindrun í gangi sem kemur í veg fyrir að fjarfundafundaformið sé notað í ríkari mæli.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 7 (2) 2011
Athugasemdir: 
  • Erindi og Greinar
Samþykkt: 
  • 20.12.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10409


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
b.2011.7.2.3.pdf397.77 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna