Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9098
Þegar Ísland verður gengið í Evrópusambandið mun fræðafólk og annað áhugalið eflaust lesa þetta litla rit til að glöggva sig á aðdraganda þeirra miklu tímamóta. Nú þegar gagnast ritið þeim sem vilja fræðast um stöðu Íslands í Evrópusamrunanum, á þessum skrýtnu tímum þegar helst er deilt um hvort „Evrópumálin“ séu „á dagskrá“ eða ekki. En það mun væntanlega breytast á næstu árum. Afstaða Íslands til Evrópusambandsins gæti orðið mál málanna hvort sem mönnum líkar betur eða verr.
Bókin er byggð á nær samnefndri ráðstefnu sem Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hélt í nóvember 2006, „Ný staða í utanríkismálum – tengsl Íslands við önnur Evrópulönd“. Allir nema einn þeirra sem
fluttu erindi á ráðstefnunni birta þau í bókinni og tveimur greinum var bætt við, frá Jónasi H. Haralz og Þorvaldi Gylfasyni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
c.2007.3.2.12.pdf | 21.25 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |