Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/869
Verkefnið er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á
Akureyri. Umfjöllunarefnið er ráðningarferli og starfsmannavelta hjá
verslunum víða um land.
Leitast er við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu:
Hvernig er ráðningarferli háttað hjá verslunum á Íslandi?
Jafnframt er sett fram tilgátan:
Það eru sterk tengsl milli menntunarstigs þeirra sem sjá um ráðningar í
verslunum á Íslandi og þess hvort notaðar séu formlegar eða óformlegar
aðferðir við öflun umsækjenda.
Líkur á að fólk nýti sér fræðilegar aðferðir, sem auka líkur á árangri, standa í
beinu hlutfalli við menntunarstig þess. Best þykir að afla sem flestra
umsækjenda til að auka möguleikann á að finna hæfasta starfsmanninn.
Formlegar aðferðir ná til margra einstaklinga. Því má telja líklegt að fólk með
hærra menntunarstig noti frekar formlegar en óformlegar aðferðir við öflun
umsækjenda.
Í kjölfarið eru undirspurningar:
Framkvæma verslanir starfsgreiningu?
Hvað aðferðir eru helst notaðar við starfsmannaval hjá verslunum?
Leitað er svara við spurningunum á fræðilegan hátt þar sem heimilda var aflað
úr bókum, greinum, fræðiritum og af netinu. Einnig var framkvæmd megindleg
könnun meðal verslana víða um land, sendur var út spurningarlisti með tólf
spurningum og honum fylgt eftir með símtali við fyrirtækin. Helstu
niðurstöður eru þær að verslanir notast ekki við fræðilegar aðferðir í nógu
miklum mæli. Könnunin gefur ekki tæmandi niðurstöður þar sem úrtakið var
of lítið til að hægt sé að alhæfa út frá því. Tilgátunni var hafnað þar sem ekki
virðast vera tengsl milli menntunarstigs þeirra sem sjá um ráðningar og aðferða
við öflun umsækjenda.
Lykilorð:
Ráðningarferlið Mannauður
Starfsgreining Starfsmannavelta
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Microsoft Word - Lokaverkefni.pdf | 295.69 kB | Locked | Ráðningar - heild |