en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/8839

Title: 
  • Title is in Icelandic Skilvirkni samfélagslegra auglýsinga : unnið í samvinnu við Vátryggingafélag Íslands
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Ölvunarakstur er eitt af stærri vandamálum vestrænna samfélaga. Dag hvern halda tugir ökumanna út í umferðina á Íslandi undir áhrifum áfengis eða jafnvel annarra sterkra efna. Þessi hópur ökumanna er sjálfum sér og öðrum vegfarendum afar hættulegur og getur valdið miklu tjóni fyrir samfélagið. Nokkur fyrirtæki og stofnanir hafa brugðið á það ráð að birta forvarnarauglýsingar í von um að draga úr ölvunarakstri. Vátryggingafélag Íslands (VÍS) hefur verið leiðandi í slíkum auglýsingum undanfarin ár og hafur átt áhrifaríkar auglýsingaherferðir. Markmið þessa verkefnis er að meta skilvirkni ölvunarakstursauglýsingu frá VÍS í von um að komast að því hvort auglýsing hafi áhrif á hegðun ökumanna og þá hvernig. Til að komast að marktækri niðurstöðu notaðist rannsakandi við megindlega rannsóknaraðferð í formi vefkönnunar. Rúmlega 700 manns svöruðu könnuninni og voru svör flokkuð eftir þremur grunnbreytum, kyni, aldri og menntun. Markmiðið með slíkri greiningu var að kanna hvort ofangreindar grunnbreytur hefðu áhrif á svörun þátttakenda og hvernig þá. Rannsóknin er unnin í samstarfi við VÍS en skilvirkni auglýsingarinnar hefur ekki verið rannsökuð áður. Rannsóknin er því sú fyrsta sem gerð hefur verið á auglýsingunni. Við vinnslu verkefnisins hafði rannsakandi til hliðsjónar skýrslur frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa og afbrotafræði Ríkislögreglustjóra en það voru jafnframt einu fyrirliggjandi tölur sem rannsakandi notaði við vinnslu verkefnisins.
    Lykilorð:
     Ölvunarakstur
     Samfélagsleg markaðsfræði
     Hræðsluáróður
     Skilvirkni
     Markaðsrannsókn

Description: 
  • Description is in Icelandic Verkefnið er lokað
Accepted: 
  • May 31, 2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8839


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaverkefni Bergur G. Jónasson.pdf1,37 MBLockedPDF